FranklinCovey - þitt forskot til framtíðar
  • Forsíða

  • Lausnir

  • Þjálfun

  • Um okkur

  • Bókabúð

  • Fréttir

  • More

    • Facebook Social Icon
    • LinkedIn Social Icon
    • Twitter Social Icon
    • YouTube Social  Icon
    0

    Í hvert skipti sem þú deilir nýjum upplýsingum með teyminu þínu, leggðu þá áherslu á „af hverju“, ekki einungis „hvað“ eða „hvernig“.

    February 14, 2019

    Sem stjórnandi getur það hvernig þú deilir upplýsingum skilið á milli þess hvort undirmenn takast á hendur vinnuna með markvissum hætti og af tilgangi og eldmóð - eða yppa öxlum og segja, „Og hvað með það?“ Hvort sem þú ert að setja ný markmið, endurskoða væntingar eða miðla upplýsingum um rekstrarbreytingar, er nauðsynlegt að draga upp skýra mynd af því af hverju eitthvað er að gerast. Ef undirmenn þínir skilja samhengi aðstæðna munu þeir ekki einungis vera líklegri til að helga sig nýjum aðgerðum heldur munu þeir einnig vera betur í stakk búnir til að leggja af mörkum eigin innsýn, hugmyndir og endurbætur.

    Hvernig skal gera þetta:

     

     

    1. Skrifaðu hvað er að gerast, af hverju og hvaða máli þetta mun skipta fyrir teymi þitt í framtíðinni.

    Skipuleggðu hugsanir þínar með því að gera lista yfir t.d. hvernig ákvörðunin var tekin, hvaða kostir og gallar voru metnir við ákvörðunartöku, helstu afleiðingar fyrir vinnu teymisins og annað samhengi sem þú getur deilt.

     

     

    2. Útskýrðu af hverju þetta er að gerast þegar þú segir teyminu fyrst fréttirnar — ekki bíða.

    Ef þú bíður þar til seinna með að útskýra af hverju breytingar eru að eiga sér stað, þá mun teymið þegar hafa mótað viðbrögð við því. Og ef þau viðbrögð eru neikvæð þá getur verið erfitt að breyta viðhorfi fólksins. Dæmi:

     

    • Lélegt: „Ég var að koma af fundi með deildarstjórunum. Við ætlum að hætta vinnu við endurhönnun vefsvæðisins okkar og hjálpa teyminu hennar Maríu með greiðslukerfið. Hún mun segja ykkur nánar frá því á fundinum á mánudaginn.“

    • Betra: „Ég var að koma af fundi með deildarstjórunum og við vorum sammála um að til að ná tekjumarkmiði þessa fjórðungs sé rökrétt að bíða með endurhönnun vefsvæðisins þar til við höfum náð að innleiða nýja greiðslukerfið. Og þar sem að teymi Maríu er fáliðað með Karl í barneignarleyfi, þá ætlum við öll að leggjast á árarnar til að klára verkið fljótt. Síðan munum við snúa okkur aftur að því að útfæra nánar hugmyndirnar um endurhönnun sem við ræddum í síðustu viku. Í millitíðinni hef ég ákveðið fund með Maríu til að ræða það sem hún mun þurfa frá hverju okkar.“

     

     

    3. Eftir að hafa deilt fréttunum, spurðu þá teymið, „Hvaða spurningar eða áhyggjur hafið þið á þessum tímapunkti?“

    Allar nýjungar og breytingar munu örugglega vekja spurningar hjá teyminu og, eftir aðstæðum, jafnvel mótstöðu, uppnám eða önnur tilfinningaleg viðbrögð. Að bjóða teyminu að leggja sitt til málanna mun hjálpa því að vinna úr nýju upplýsingunum og átta sig á atriðum sem þér kann ekki að hafa dottið í hug að deila. Í svörum þínum skaltu gera þitt besta til að létta á áhyggjum fólks („Ég get skilið að þú hafir áhyggjur en...“) og taka á hverri spurningu, jafnvel ef þú veist svarið ekki ennþá („Þakka þér fyrir að nefna þetta. Ég mun þurfa tíma til að athuga þetta mál og mun ræða við þig betur um það á morgun.“).

     

     

    4. Fylgdu málum eftir og haltu samskiptaleiðum opnum.

    Það getur tekið nokkurn tíma fyrir hópinn að melta nýju upplýsingarnar og/eða byrja að hrinda viðkomandi málum í framkvæmd. Útskýrðu hvernig þú hefur í hyggju að fylgja þessu eftir (t.d. hvort þú munir athuga hvernig gengur með nýja markmiðið á teymisfundum eða hvort þú munir kanna hvernig öllum gengur í persónulegum samtölum). Haltu einnig áfram að leggja áherslu á „af hverju“ í þeim samtölum.

     

     

     

    Meira um hvernig skal skýra teymi þínu frá breytingum:

     

    https://www.ted.com/talks/simon_sinek_how_great_leaders_inspire_action?language=en

     

     

    © 2019 Jhana Education, Inc. Öll réttindi áskilin

     

     

    Íslensk þýðing á grein Jhana ”Each time you share new information with your team emphasize why not just what” 2019. 

    Jhana stafræna ráðgjafargáttin er hluti af FranklinCovey All Access Pass.

     

     

    Please reload

    Nýlegar fréttir

    Í hvert skipti sem þú deilir nýjum upplýsingum með teyminu þínu, leggðu þá áherslu á „af hverju“, ekki einungis „hvað“ eða „hvernig“.

    February 14, 2019

    Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri ræddi við Jón G. Hauksson um áherslur og árangur stjórnenda í upphafi árs í þættinum Viðskipti með Jóni G á Hring...

    January 21, 2019

    Teymi sem missir móðinn vegna krísu – hvernig hleypum við aftur vindi í seglin?

    January 7, 2019

    FranklinCovey á Íslandi hlýtur alþjóðlega viðurkenningu.

    November 21, 2018

    Vilt þú leiða þitt teymi til árangurs ?

    September 5, 2018

    Vegna fjölda áskorana: opin vinnustofu um 4 lykilhlutverk leiðtoga fyrir stjórnendur í opinberum rekstri í september og október.

    August 23, 2018

    On Leadership þáttaröð FranklinCovey

    August 13, 2018

    Vinnustofa um 4 lykilhlutverk leiðtoga fyrir stjórnendur í opinberum rekstri 9. og 10. ágúst nk.

    June 25, 2018

    OnLeadership heimsreisa FranklinCovey

    June 14, 2018

    Vinnustofa um Virði trausts með Harvey Young

    June 8, 2018

    Please reload

    Yfirlit

    February 2019 (1)

    January 2019 (2)

    November 2018 (1)

    September 2018 (1)

    August 2018 (2)

    June 2018 (3)

    May 2018 (2)

    April 2018 (2)

    September 2017 (1)

    March 2017 (1)

    October 2016 (1)

    June 2016 (3)

    Please reload

    Fylgdu okkur
    • Facebook Social Icon
    • LinkedIn Social Icon
    • Twitter Social Icon
    • YouTube Social  Icon

    FranklinCovey Iceland | Laugavegur 178, 105 Reykjavík | info@franklincovey.is | Sími: +354 775 7077