FranklinCovey - þitt forskot til framtíðar
  • Forsíða

  • Lausnir

  • Þjálfun

  • Um okkur

  • Bókabúð

  • Fréttir

  • More

    • Facebook Social Icon
    • LinkedIn Social Icon
    • Twitter Social Icon
    • YouTube Social  Icon
    0

    Vegna fjölda áskorana: opin vinnustofu um 4 lykilhlutverk leiðtoga fyrir stjórnendur í opinberum rekstri í september og október.

    August 23, 2018

    Vegna fjölda áskorana bjóðum við aftur upp á opna vinnustofu um 4 lykilhlutverk leiðtoga fyrir stjórnendur í opinberum rekstri í september og október. 

    FranklinCovey býður stjórnendum í opinberri þjónustu að sækja áhrifamikla vinnustofu um leiðtogafærni í september og október. Um er að ræða nýja vinnustofu sem kennd er á 4 hálfum mánudögum með ráðgjöfum FranklinCovey, dr. Patrick Leddin, dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, Kristni Tryggva Gunnarssyni og Guðrúnu Högnadóttur.

     

    Vinnustofa FranklinCovey – The 4 Essential Roles of Leaders - er sniðin að viðfangsefnum milli- og æðri stjórnenda (t.d. skrifstofustjóra, sviðsstjóra, forstöðumanna, framkvæmdastjóra, forstjóra, ráðuneytisstjóra ofl.). Námsefnið er í senn áhrifamikið, hagnýtt og skemmtilegt – og vinnustofan er afrakstur umfangsmikla rannsókna á lykilfærniþáttum stjórnenda á þekkingaröld.

     

     

     

    Þátttakendur höfðu m.a. þetta að segja um vinnustofuna sem var haldin 9. og 10. ágúst sl.:

     

    „Frábært námskeið um aðferðarfræði sem ég hef fulla trú á að hjálpi okkur til að ná árangri innan íslenskrar stjórnsýslu til að bæta velferð almennings."         

       

    - Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, skrifstofustjóri Velferðarráðuneytisins

    ​

    „Vinnustofan með Patrick Leddin um 4 lykilhlutverk leiðtoga vakti neistann hjá mér að vinna dýpra með sjálfa og stjórnendateymið mitt í leiðtogahlutverkinu. Uppbygging námskeiðsins var framúrskarandi og tíminn flaug áfram. Fyrirlesarinn miðlaði efninu af áhuga og hreif þátttakendur með sér. Þá er námsefnið vel framsett og mun nýtast mér í markvissu sjálfsnámi í framtíðinni."

    ​

    - Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrá Íslands

    ​

    „Mjög vel skipulögð vinnustofa og góð kennslugögn. Patrick Leddin er einn af bestu leiðbeinendum sem ég hef hlustað á. Verkefni sem þátttakendur unnu, ýmist einir eða með öðrum, voru í senn krefjandi og skemmtileg. Hið sama má segja um vinnustofuna. Mæli hiklaust með þessu.“

    ​

    - Jóhann M. Lenharðsson, sviðsstjóri skráningarsviðs og staðgengill forstjóra Lyfjastofnunar

    ​

    „Mjög góð nálgun á stjórnun. Framsetningin praktísk til að vinna með áfram. Frábær fyrirlesari.“

    ​

    - Harpa Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjárstöðugleika Seðlabanka Íslands

    ​

    „Efnismikið og kærkomið námskeið fyrir stjórnendur.  Fræðsluhluti námskeiðsins er mjög markviss og efnið úr margreyndri smiðju Franklin Covey, á þessu námskeiði eru tvinnað saman efni í heilstæða leiðsögn fyrir stjórnendur. Leiðbeinandinn jók enn frekar við það með praktískum dæmum.  Mikil virkni þátttakenda í hópnum gaf mér persónuklega mikið.  Hluti af námskeiðinu er 360°mat sem gefur mér sem stjórnenda frábært tækifæri til að skoða eigin framistöðu með nýjum hætti og  fá á sama tíma fræðslu og leiðsögn um hvernig hægt er að bæta sig enn frekar.  Fyrirlesarinn Patrick Ledding hefur mikla reynslu og á einstakla  auðvelt með að miðla henni og virkja fólk í umræðum sem skapar meiri dýpt í viðfangsefnið.  Get mælt með þessu námskeiði fyrir alla stjórnendur hvort sem þeir eru í einkageiranum eða hjá hinu opinbera.“

    ​

    - Aðalheiður Sigursveinsdóttir, mannauðsstjóri Þjóðskrá Íslands

     

     

     

    Dr. Patrick Leddin er tvímælalaust einn af fremstu ráðgjöfum FranklinCovey með sérhæfingu í opinberum rekstri.  Hann er prófessor við Vanderbilt háskólann þar sem hann sérhæfir sig í stefnumótun, leiðtogafræðum og breytingastjórnun.  Patrick átti farsælan feril í bandaríska hernum þar sem hann hóf ferilinn sem fallhlífarhermaður í sérsveitunum og vann sig upp í stjórnunarstöðu.  Hann starfaði síðan hjá KPMG sem ráðgjafi og stofnaði síðan eigin ráðgjafafyrirtæki sem hann seldi þegar hann sneri sér að kennslu.  Hann býr yfir mikilli reynslu af vinnu með stjórnendateymum í opinberum rekstri og hefur unnið með stjórnendum í Bandaríkjunum og Kanada, víðs vegar Asíu og í mörgum Evrópulöndum. Hann er höfundur bókarinnar "Building a Winning Culture in Government", sem kom út í maí 2018.

     

    Þau Guðfinna, Kristinn og Guðrún hafa áralanga reynslu af starfi, ráðgjöf og kennslu í opinberri þjónustu - nánar um þau hér.

     

     

    Tími: Mánudagurinn 3. september – 13:00 til 17:00

             Leadership and creating a team vision - Patrick Leddin
             Mánudagurinn 10. september – 13:00 til 17:00

             Leading at the speed of trust - Guðfinna S. Bjarnadóttir

             Mánudagurinn 17. september – 13:00 til 17:00

             Executive strategy - Kristinn Tryggvi Gunnarsson

             Mánudagurinn 1. október – 13:00 til 17:00

             Coaching for performance - Guðrún Högnadóttir

    Staður: Hótel Plaza Centerhotel, Aðalstræti 4, 101 Reykjavík.

    Verð: 140.000 IKR


    Innifalið í verði eru vönduð innbundin námskeiðsgögn, 360° persónulegt rafrænt mat, handbók um innleiðingu á vinnustað, spilastokkur með ágripi af kennsluefni, rafrænn aðgangur að námskeiði, ítarefni, og myndböndum, bók Patrick Leddin ofl.

     

     

     

     

     

     

     

     

     

     

     

     

     

    Nánari upplýsingar hjá Þóru Sif í síma 775 7077 eða á thora@franklincovey.is

     

    Please reload

    Nýlegar fréttir

    Í hvert skipti sem þú deilir nýjum upplýsingum með teyminu þínu, leggðu þá áherslu á „af hverju“, ekki einungis „hvað“ eða „hvernig“.

    February 14, 2019

    Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri ræddi við Jón G. Hauksson um áherslur og árangur stjórnenda í upphafi árs í þættinum Viðskipti með Jóni G á Hring...

    January 21, 2019

    Teymi sem missir móðinn vegna krísu – hvernig hleypum við aftur vindi í seglin?

    January 7, 2019

    FranklinCovey á Íslandi hlýtur alþjóðlega viðurkenningu.

    November 21, 2018

    Vilt þú leiða þitt teymi til árangurs ?

    September 5, 2018

    Vegna fjölda áskorana: opin vinnustofu um 4 lykilhlutverk leiðtoga fyrir stjórnendur í opinberum rekstri í september og október.

    August 23, 2018

    On Leadership þáttaröð FranklinCovey

    August 13, 2018

    Vinnustofa um 4 lykilhlutverk leiðtoga fyrir stjórnendur í opinberum rekstri 9. og 10. ágúst nk.

    June 25, 2018

    OnLeadership heimsreisa FranklinCovey

    June 14, 2018

    Vinnustofa um Virði trausts með Harvey Young

    June 8, 2018

    Please reload

    Yfirlit

    February 2019 (1)

    January 2019 (2)

    November 2018 (1)

    September 2018 (1)

    August 2018 (2)

    June 2018 (3)

    May 2018 (2)

    April 2018 (2)

    September 2017 (1)

    March 2017 (1)

    October 2016 (1)

    June 2016 (3)

    Please reload

    Fylgdu okkur
    • Facebook Social Icon
    • LinkedIn Social Icon
    • Twitter Social Icon
    • YouTube Social  Icon

    FranklinCovey Iceland | Laugavegur 178, 105 Reykjavík | info@franklincovey.is | Sími: +354 775 7077