FranklinCovey - þitt forskot til framtíðar
  • Forsíða

  • Lausnir

  • Þjálfun

  • Um okkur

  • Bókabúð

  • Fréttir

  • More

    • Facebook Social Icon
    • LinkedIn Social Icon
    • Twitter Social Icon
    • YouTube Social  Icon
    0

    Guðfinna og Kristinn til FranklinCovey

    April 5, 2018

    Guðfinna S. Bjarnadóttir og Kristinn Tryggvi Gunnarsson hafa gengið til liðs við FranklinCovey á Íslandi.

     

    Kristinn Tryggvi Gunnarsson hefur tekið við nýrri stöðu viðskiptastjóra áskriftarþjónustu (Client Partner - All Access Pass) þekkingarfyrirtækisins FranklinCovey á Íslandi.

     

    Kristinn, sem hefur víðtæka stjórnunarreynslu, hefur frá árinu 2002 starfað sem ráðgjafi í stefnumótun, markaðs- og þjónustumálum þar sem hann hefur leitt á sjötta tug stefnumótunarverkefna fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Undanfarin ár hefur hann helgað sig innleiðingu stefnu með aðferðarfræði FranklinCovey (4DX) sem nú hefur verið innleidd hjá rúmlega 600 teymum í 20 fyrirtækjum.

     


    Guðfinna S. Bjarnadóttir, PhD hefur tekið við umsjón með vörulínu FranklinCovey um traust (Practice Leader - Leading at the Speed of Trust). Guðfinna er meðeigandi og stjórnandi í LC ráðgjöf og hefur sem ráðgjafi þjónað fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum um allan heim.

     

    Hún lauk doktorsprófi í atferlisfræði með áherslu á stjórnun árið 1991. Guðfinna stofnaði LEAD Consulting í Bandaríkjunum og rak það um 10 ára skeið ásamt eiginmanni sínum.  Hún var fyrsti rektor Háskólans í Reykjavík (1998-2007) og sat á Alþingi árin 2007-2009.

     

     

     
    Um FranklinCovey

    Áskriftarþjónusta FranklinCovey (All Access Pass) veitir fullkominn sveigjanleika fyrir þá sem vilja hafa langvarandi áhrif á frammistöðu síns vinnustaðar.

     

    Þessi endurnýjanlega áskrift veitir óheftan aðgang að efni, matstækjum, myndböndum, verkfærum og stafrænum lausnum FranklinCovey á sviði leiðtogaþjálfunar, framleiðni, verkefnastjórnunar, sölustjórnunar, þjónustustjórnunar, trausts og innleiðingu stefnu (4DX).

     

    http://www.vb.is/frettir/gudfinna-og-kristinn-til-franklincovey/145827/

     

     

    Please reload

    Nýlegar fréttir

    Í hvert skipti sem þú deilir nýjum upplýsingum með teyminu þínu, leggðu þá áherslu á „af hverju“, ekki einungis „hvað“ eða „hvernig“.

    February 14, 2019

    Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri ræddi við Jón G. Hauksson um áherslur og árangur stjórnenda í upphafi árs í þættinum Viðskipti með Jóni G á Hring...

    January 21, 2019

    Teymi sem missir móðinn vegna krísu – hvernig hleypum við aftur vindi í seglin?

    January 7, 2019

    FranklinCovey á Íslandi hlýtur alþjóðlega viðurkenningu.

    November 21, 2018

    Vilt þú leiða þitt teymi til árangurs ?

    September 5, 2018

    Vegna fjölda áskorana: opin vinnustofu um 4 lykilhlutverk leiðtoga fyrir stjórnendur í opinberum rekstri í september og október.

    August 23, 2018

    On Leadership þáttaröð FranklinCovey

    August 13, 2018

    Vinnustofa um 4 lykilhlutverk leiðtoga fyrir stjórnendur í opinberum rekstri 9. og 10. ágúst nk.

    June 25, 2018

    OnLeadership heimsreisa FranklinCovey

    June 14, 2018

    Vinnustofa um Virði trausts með Harvey Young

    June 8, 2018

    Please reload

    Yfirlit

    February 2019 (1)

    January 2019 (2)

    November 2018 (1)

    September 2018 (1)

    August 2018 (2)

    June 2018 (3)

    May 2018 (2)

    April 2018 (2)

    September 2017 (1)

    March 2017 (1)

    October 2016 (1)

    June 2016 (3)

    Please reload

    Fylgdu okkur
    • Facebook Social Icon
    • LinkedIn Social Icon
    • Twitter Social Icon
    • YouTube Social  Icon

    FranklinCovey Iceland | Laugavegur 178, 105 Reykjavík | info@franklincovey.is | Sími: +354 775 7077